Aðalvalmynd

Auglýsing

Innskráningar kubbur

04. nóvember 2008 klukkan 21:36
jæja mig langaði að blogga aðeins, ætlaði bara að monta mig að því að ég er búin að eignast litla sæta, svarthærða krullu frænku. Tóti&Halla eiga hana og fæddist hún 31.októberLaughing Ég get ekki beðið eftir að fá að hitta hana og halda á henni, en þarf að bíða í rúmar tvær vikur í viðbót en þá förum við Kristján með m&p að skoða dúlluna. En hún er búin að fá nafnið Ísold og eflaust ber hún það með sóma og eins og ég segi þá eru allir voða spenntir að fá að hitta hana Smile

En það er svosem ekkert mikið meira að frétta, nema bara núna ætla ég að vera dugleg að föndra jólagjafir og jólakort svona til tilbreytingar og þar sem við erum fátæk hér á bæ þá flestir bara heimatilbúið ódýrt, sem mun þó nýtast vonandi hehe
Wink

Góða nótt ..

Well he gets up in the morning and he goes to work at nine

26. október 2008 klukkan 22:05
Jæja, alltaf líður jafn langt á milli bloggfærsla hjá mér nenni hreinlega ekki að skrifa nema að andinn komi yfir mig og það er sjaldan!
En Jæja gleðilegan veturLaughing Alltaf jafn indælt að fá snjóinn og kuldann og þá er gott að vera inní hlýjunni með kertaljós og notalegheit. En þessi helgi er eiginlega bara búin að vera notalegheit og leti. Er búin að vera í 4ja daga helgarfríi, setti vetrardekkin undir á fimmtudagsmorguninn því það snjóaði svo hrikalega mikið um nóttina og plús þá festi ég bílinn þegar ég ætlaði að skutla Kristjáni í vinnuna og gamli var um hálftíma að moka hann útSmile En svo þurfti bílinn líka í viðgerð til þess að gera við ljós og það kostaði hellings pening, búin að eyða alltof mikið í bílinn og svo þarf hann líka að fara í skoðun í okt! já það er allaveag alltaf eitthvað til þess að eyða peningnum í Wink á föstudagskvöldið fórum við í afmæli til Hreinsa vin hans Kristjáns, þar var nú bara drukkið aðeins og spilað og það var bara gaman. Við Kristján löbbuðum svo heim úr afmælinu (sem var í naustahverfi) og þetta er í mesta lagi 10 mín gangur en ég hélt á tímabili að við myndum verða úti, þvílikt veður úti og fékk heilafrýs(eða eitthvað) og í eyrun og ekki þurr þráður á okkur þegar við komum heim Smile En já á laugardaginn var svo hringt í okkur og þá var búið að keyra á bílinn minn, stuðarinn dottinn af og beygla..þriðja skiptið sem það er bakkað á mig!
En svo var það bara að kaupa nammi og baka pizzu í kvöldmatinn og horfðum á mynd og höfðum það notalegtWink Byrjaði svo daginn í dag að sjóða slátur til þess að hafa í kvöldmatinn. Gerðum nú ekki ýkja mikið svo í dag, hentum rusli og í búð og svona. Svo eldaði Kristján mjólkurgraut í kvöldmat og nýtt slátur með og það var mjöög gott, langt síðan maður hefur fengið nýtt slátur Laughing
Er svo að fara að vinna núna 10 daga í röð! En tvær aukavaktir, þannig að vonandi fær maður fínt útborgað í nóv. Svo ætlum við að fara suður 15 nóv með m&p að skoða nýjasta fjölskyldumeðliminn ef hann verður fæddur, mesta áhyggjuefnið er að barnið verði ekki fætt fyrir þann tíma en við vonum samt og allir orðnir mjöög spenntir Laughing Laughing
Næsta helgi er árshátíð hjá Slippnum og við gamli ætlum að fara...en svosem ekkert meira ákveðið. Maðr er bara farin að bíða eftir að komast suður Smile

ó mig auma

08. október 2008 klukkan 23:37
Nei góða kvöldið kæru vinir. Aldrei nenni ég að blogga á þessa síðu, þó annaðslagið...Brosandi
Þá er ég komin í helgarfrí, 4ja daga frí og það verður bara leti helgi vonandi það eru bestu helgarnar Hlæjandi
Eitthvað höfum við brasað hérna í Hafnarstrætinu síðan ég bloggaði seinast, við fórum á tónleika föstudaginn fyrir tveimur vikum og það voru vægast sagt geðveikir tónleikar. Brainpolice og Barnd Bjork and the bros alveg geðveikir tónleikar!
Við vorum nú svo húsmóðurleg hérna heima á föstudaginn seinasta, ég bakaði frassnska súkkulaðiköku og Kristján gerði heitan rétt og við buðum Diddu mömmu Kristjáns, Beggu systir hans og tveim frænkum Bryndisi og þórhildi í kaffi og var þetta allt saman etið upp enda svo ljúffengt, góðir bakarar hér á ferð blikkblikk. Svo um kvöldið fórum við svp á aðra tónleikar á seinasta föstudag á Týr, og 4 hljómsveitir á undan og sjitt hélt ég myndi kúka á mig úr leiðindum. Sjaldan leiðst tónlist jafn mikið og á tímabili var mér orðið óglatt og illt í maganum Óákveðinn En svo komu Týr á svið og voru geðveikt svalir, sveittir, loðnir, berir að ofan !! Brosandi hehe. Já góða fólk ..það er ekkert spes í fréttum ..
Móðir kær bauð okkur í ljúffengan fisk og ostaköku í vikunni, maður stóð á blístrinu eins og vanalega og fengum að launum málverk og blævæng hehe :)
Maður er nú búin að fá boð í tvo ef ekki þrjú partý á laugardaginn en held ég láti það alveg vera..langar ekkert út að skemmta mér hvað þá drekka ojj bara ..alveg búin að fá myglu fyrir því. Ætla helst að liggja heima í leti og þá helst ef gamli vill vera með mér í því Glottandi

Já svo var það aðalfundur leikfélagsins seinasta mánudag, það var gaman eins og alltaf og ég verð ennþá í varanefndinni hehe, en það er búið að ákveða leikrit og ég er með fiðring í maganum og fiðrildi í fingurgómunum og allt hvað eina ..mig langar svo að vera með! Líklegast verð ég það ef ég fær hlutverk, vonandi við Sunna báðar ohh vá ég hlakka svo tilHlæjandi




stand by me

26. september 2008 klukkan 11:22
Góðan daginn. Alllangt síðan ég bloggaði seinast og eflaust eitthvað spennandi búið að gerast síðan þá.

Er nú búin að vera að vinna 7 daga í röð í gær og var orðin ansi þreytt og komin í langráð helgarfrí. Hlæjandi
Seinustu helgi var ég að vinna, og gerðum nú ekki mikið eflaust legið mikið í léti. Fórum jú í heimsókn til Dodda&Jóhönnu laugardagskvöldið og í mat til m&p...

Guð þessi blogg verða alltaf styttri og styttri hjá mér, hef ekki frá neinu að segja. Ég þarf að fara í dag og finna gjöf handa sumum Brosandi SVo er innflutningspartý hjá Elvu annaðkvöld og eflaust stuð eins og vanalega. Veit ekkihvað við gerum í kvöld, kannski tónleikar ...maður veit aldrei.

JÆJA krakkar mínir nú styttist óðum í jólin og um að gera að fara að spá í jólagjafir, allavega er ég farin að gera það og komin með ýmsar hugmyndir. Reyndar í ár verða þetta mest heimatilbúnar, ódýrar gjafir. Við erum svo fátæk greyin hérna í Hafnarstrætinu þannig þetta verður ódýrt í ár. Svo ætla ég nú kannski að föndra líka jólakort, verð að finna mér eitthvað svo mér leiðist ekki þegar ég er í fríi, á það til.

Jæja já, best að huga að eggjunum sem ég er að sjóðaí túnfiskssalat sleeef ég er svöng.Brosandi

blá

12. september 2008 klukkan 11:06
Góðan daginn góðu hálsar, langt síðan ég hef komið með fréttir og sýnist enginn sakna þess Glottandi
Síðan ég bloggaði seinast hefur eitt og annað gerst. Ættarmótið var 30.ágúst í bústaðnum byrjaði fyrst kl 3 uppí kirkjugarði og fórum og heilsuðum uppá gömul leiði, fórum svo á Iðnaðarsafnið það var mjög gaman og forvitnilegt og svo auðvitað kom tante Sofia, var orðin mest spennt að hitta hana endamörg ár síðan ég hef séð hana, hún er auðvitað eins og hún á sér að vera Brosandi Svo var grill í Hamragili og þar var hún tante auðvitað með sögur og gátur og vísur og skemmtu öllum hehe allavega mér en  þetta var mjög gaman og gaman að  hitta þetta fólk. Rann uppfyrir mér þegar ein konan kom og sagði jæja þekkiði alla og ég fattaði að ég þekkti engan nema mitt fólk sem voru bara nokkrir. En við fórum svo heim um hálf 11 við Kristján fórum heim, blönduðum okkur í glös og svo kom fólk í heimsón og við skemmtum okkkur vel, við stelpurnar fórum út á undan strákunum til þess að dansa og það var fjör og stuð eins og  vanalega.Glottandi
En svo höfum við bara verið að vinna og frí og vinna og liggja í leti og borða nammi.
Seinasta helgi var síðan ég að vinna og Kristján í sveitinni í göngum og réttum og drekka. Edda kom á föstudaginn þannig við fórum á rúntinn á fös og lau og ég í mat til m&p á laudaginn í dyrindis grill eins og alltaf. BrosandiEn eins og alltaf var ég að vinna þegar gangnaballið er(og stóðréttaballið) alveg týpískt og eflaust þegar þorrablótið verður líka! En gangnaballið var mikið fjör, Lilli skutlaði okkur Jóhönnu á ballið og vorum við rosa sætar en eins og alltaf þá kemur alltaf eitthvað svona ,,þú kemur ekki í leðurjakka á gangnaball" ..það fór aðeins of mikill æsingur í ballið þannig það endaði í æli&væli og gloppótt minni..skil ekki af hverju eiginlega. Arnór frændi Kristjáns skutlaði okkur svo heim eftir ballið og já man nú ekkert eftir þeirri bílferð, var orðin svo þreytt grey.Svalur En mjög gaman, dansað mikið og drukkið, hlegið og trúnó !! haha. Þannig það segir að sjálfum sér að mánudagurinn var hryllingur frá því ég opnði augun að morgni og þangað til ég lokaði þeim að kvöldi!
Fór á Volare kynningu til Elvu á miðvikudag og já ég er búin að fá fjólubláubuxurnar mínar! þær eru sjúklega flottarHlæjandi

En núna er ég komin í helgarfrí alveg fram á þriðjudagHissa Það er vinnupartý í kvöld, grill og pottur og svo á morgun er afmæli hjá Pearl Jam, ég sem ætlaði svo að vera heima og drekka bara vatn...en það verður stuð, að vanda.
Nenni ekki meiru kannski ég fari að lesa bók?

klam.is

27. ágúst 2008 klukkan 14:16

Góðan daginn æstir aðdáendur.

Þá er nú farið að hausta greinilega, kaldari vindur og orðið dimmt á kvöldin sem er alveg það notalegasta í heimi nú bíður  maður bara eftir kuldanum og snjónum Brosandi Neii ekki alveg strax, kannski maður þyrfti að fara allavega einu sinni í berjamó áður en það færi að snjóa.

Andanefjan er bara hér í pollinum og heilu bílaraðirnar bíða eftir að hún stökkvi uppúr sjónum og sýni sig aðeins og svo reglulega rútur til þess að sýna ferðafólki með myndavélar. En það er engu síður gaman að horfa á hana þegar hún lætur sjá sig Glottandi

Fréttir héðan eru fáar eins og vant er. (eld)Gamli folinn átti afmæli á sunnudaginn og ég keypti litla gjöf handa honum og rósir sem blómstra enn. Var nú bara að vinna um helgina, morgunvaktir og fór í mat til mömmu og pabba föstudag og sunnudag.Kristján ennþá á kvöldvöktum þannig ég hékk bara ein. Við Elva pöntuðum þó okkur pizzu á laugardag og átum nammi með bestu lyst og horfðum á Friends Brosandi Það er alltaf jafn gaman. Elva er svo að fara að leigja og Doddi&Jóhanna líka og er ekki frá því að það komi smá öfund. Man hvað maður var sjúklega spenntur og ógeðslega gaman að flytja í sitt eigið og vera alveg sér ohh en ég hlakka til að fara í heimsókn til þeirra Hlæjandi 

Það eru 11 dagar í gangnaballið og ég er bara orðin sjúklega spennt og farin að spá í hverju ég eiginlega ætti að vera í, búin að redda vaktinni þannig ég verð á morgunvakt. Verst að ég er á kvöldvakt lau og morguvakt sun þannig ég kemst lítið sem ekkert í sveitina í réttir eða neitt Óákveðinn En gangnaballið bætir það allt upp og eins gott að Jóhanna breyti sinni vakt líka!! Ullandi

Jæja kvöldvakt í kvöld, morgunvakt á morgun og svo 3ja daga helgafrí og ættarmót á laugardaginn og Akureyrarvakan og fatamarkaður sem ég ætla sko á !! EN jæja ég held ég hætti þessi í bili og fái mér te í flösku.

You never did what you know you oughta

19. ágúst 2008 klukkan 22:18

Jæja mér leiðist!

Langt síðan ég bloggaði já enda svo upptekin manneskja. Örugglega eitthvað búin að ske síðan seinast, við Kristján fórum já á fiskidaginn eða laugardagskvöldið. Doddi&Jóhanna náðu svo í okkur í sveitina og við héldum í Dallas, horfðum á geðveika flugeldasýningu og löbbuðum um og pissuðum! Fórum í party ansi skemmtilegt partý með fullt af fólki sem ég þekkti ekkert!! Brosandi Hitti þó ýmsa sem ég þekkti, fórum í Bakaríið og dönsuðum dátt þar með Elvu og Jóhönnu ,en annað er þó í þoku ennþá Glottandi Sunnudagurinn var ekki spes, fór að vinna kl 3 og vorum þar tvær súperþunnar og úldnar, komumst þó í gegnum vinnudaginn á endanum Glottandi

Vikurnar hafa bara liðið ljúflega og góðar, var í fríi seinustu helgi var að vinna 12 tíma á föstudaginn og fór svo á Greifann með Elvu&EDdu og svo á rúntinn og það var mjög gaman! Gerum svo sjaldan eitthvað svona saman, alltof sjaldan! Upp rann laugardagur Kristján fór með vinnunni á sjóstöng og siglingu með Húna kl 3 þannig ég var bara ein og löt. Flúði svo að heiman um 5 til þess að fara í bústaðinn í mat til mömmu&Pabba í dýrindis grill namminamm...(já ég flúði því það var verið að spila Magnús þór sigmundsson svo hátt hérna í húsinu að ég heyrði ekkki í mínum eigin hugsunum) kl 12 að miðnætti var síðan hringt í mig úr vinnunni og ég beðin um að koma á næturvakt og ég sló til, ekki veitir af peningunum. Gráðugur þannig að nóttin leið með sínum nammi og popp áti! Steinsofnaði auðvitað um leið og ég lagðist á koddann vaknaði um 1 ennþá þreyttari en dagurinn fór bara í það að sofa og sofa meira held bara sjaldan verið jafn þreytt eða sofið svona mikið ekki eðlilegt! Vaknaði loksins um 8 leytið, dreif mig í sturtu og við Kristján fórum í göngutúr í góða veðrinu og fengum okkur svo ís Hlæjandi

En núna er ég búin að vera í fríi mánudag og þriðjudag og Kristján á kvöldvöktum þannig ég sit hér alein og langar í súkkulaði!
Svo líður að ættarmóti þann 30.ágúst, pínu spenntur að hitta allt þetta fólk sem maður þekkir ekkert og sér aldrei. SVO er það réttarballið 7.september og auðvitað er þetta vinnuhelgin mín eins og alltaf en ég redda sunnudeginum, maður missir ekki af gangnaballinu
Brosandi




TUTTUGU OG EINS ÁRS

07. ágúst 2008 klukkan 13:15

Jæja þá er maður orðin 21 árs! Ekkert smá gamall sem maður er orðin..

Verslunarmannahelgin rann upp löng og skemmtileg. Var í fimm daga fríi, svo ótrúlega ljúft. Við Jóhanna fórum á búðarráp á föstudaginn og versluðum föt í frúnni í HAmborg, við Kristján fórum svo og versluðum áfengi og flögur fyrir veisluna. Föstudagskvöldið fórum við á Hvanndalsbræður og skemmti mér vel, fórum svo í eftirpartý heim og svo aftur í bæinn en stoppuðum nú ekki lengi. Lágum svo bara í leti á laugardaginn, borðuðum og hvíldum okkur fyrir kvöldið. Uppúr 8 byrjaði fólkið að koma og sumir með pakka Brosandi Gerðum bollu sem var síðan uppurin kl 10 en náði nú að svolgra nokkrum glösum af nornaseyði í mig. En svo kom fullt af fólki, Tóti,Halla, Embla& Kormákur komu í smá heimsókn hef ekki séð Kormák í ár þannig ég var mjög glöð að hitta hann Glottandi svo hélt fjörið áfram fram á nótt, sumir voru nú farnir að týnast heim eða í bæinn en við seinustu fórum um 3 eftir mikið gítarspil og bassaglamur. Löbbuðum niður í bæ en var þar heldur ekki lengi og fór fljótlega heim aftur. Komst að því eftir þessa helgi(jæja var svosem búin að uppgvöta það áður) en bærinn er leiðinlegur staður til þess að skemmta sér í, partý eru miklu skemmtilegri með fólk sem er skemmtilegt!! En þetta var svakalega skemmtilegt afmæli og gaman að fá allt þetta fólk í partý Hlæjandi Svo var þessi bolla líka eitthvað rugluð, þó hún hafi verið góð þá varð ég rugluð og svo sjúklega þunn daginn eftir að ég hef sjaldan kynnst öðru eins, viðbjóður! En það síðan lagaðist þegar leið á kvöldið, var að hugsa um að fara á Hjálma tónleika en hætti við, nennti því ómögulega en Kristján fór út og skemmti sér. Á mánudaginn vorum við bæði í fríi og ennþá meiri leti, fór í heimsókn til mömmu og pabba fékk pizzuSvalur OG SVO á þriðjudaginn var ég í fríi og átti afmæli, tók mig til og við mamma fórum í búð og versluðum aðeins fyrir matinn um kvöldið. Héldum svo í bústaðinn um 7 komu Sunna, Sigrún, amma, Tóti, Halla, Embla og Kormákur og svo Kristján og Lilli og við borðuðum öll saman grillmat og ljúffenga kaloríubombu í eftirmatGlottandi SVo var legið á meltunni og fórum heim um 11 leytið og fljótlega að sofa. Svo ógleymdu þá eignaðist ég litla frænku á afmælisdeginum mínum. Emil frændi og Þóra kærastan hans eignuðust hanaBrosandiNú er maður orðin spenntari fyrir meiri fjölgun í fjölskyldunni Glottandi

En jæja svo er það fiskidagshelgin mikla og við Kristján stefnum á að fara og kannski tjalda erum ekki alveg búin að ákveða. Hef aldrei farið áður á fiskidagin, er reyndar ekki mjög bjartsýn á að ná tjaldstæði á laugardaginn þar sem það byrjaði einhver dagskrá í gær og fólk farið að streyma til Dalvíkur en við sjáum hvað setur Glottandi





ofsalegur gæ

30. júlí 2008 klukkan 21:16
Jæja lúðar senn líður að verslunarmannahelginni og afmælispartý og það stefnir í að þetta verði brjálað partý !! Erum að spá að gera bollu og kannski eitthvað gott að borða  Brosandi Tóti, Halla&Embla ætla síðan að koma á laugardaginn en því miður ekki Kormákur Gráta En allavega verður mjög gaman að hitta þau og skreppa aðeins í bústaðinn. Svo á hann faðir minn afmæli á morgun og verður smá veisla í Hamragili eftir vinnu og verða kræsingar að hætti mömmu.
Fer á morgunvakt á morgun og svo er ég komin í 5 daga frí HlæjandiHlæjandi Það er alveg ágætt, er að fara á sjöunda vaktina í röð á morgun og það er nú alveg nóg að gera í vinnunni þannig það verður gott að hvíla sig.

OG ÞETTA VEÐUR vá, man aldrei eftir öðru eins. Alltaf heitt og sveitt, sérstaklega  í vinnunni maður bara situr og svitnar og ef maður þarf nú að gera eitthvað þá bara er maður enn sveittari með alla glugga opna en samt er það ekki nógu mikið! En er ekki að kvarta þetta er ágætis tilbreyting, hefði þó mátt koma svona veður í sumarfríinu en maður reynir að fara í sólbað öðru hvoru til þess að fá nokkrar freknur á hnéin!Svalur

En jæja það er ekkert merkilegt annað í fréttum, Kristján er bara alltaf á fullu í heyskap í sveitinni og ég bara í vinnunni og já ekkert að frétta Brosandi


my love will turn you on

23. júlí 2008 klukkan 12:06
Rann upp fyrir mér að það var orðið langt síðan ég bloggaði og vantaði líka eitthvað að gera.
Dagarnir fara nú aðallega í það að vera í leti og horfa á Friends Brosandi Seinustu helgi var ég í fríi og fékk langt helgarfrí sem er alltaf mjög ljúft. Þreif allt og skúraði og allt sammen og gerðumnú ekki ýkja mikið föstudagskvöldið, held meira að segja að við höfumverið sofnuð um 12 leytið Glottandi Vöknuðum ansi snemma á laugardaginn og fórum í sólbað og ég brann svolítið og furðulega! Fórum svo í fimmtugs afmæli um kvöldið til Arnar frænda og ég var aðallega þó með Sunnu, Sessu og Silv í eldhúsinu, fylla á matinn og þvo diska og greyið Kristján sat hjá gömlu fólki að segja gamla brandara Glottandi En ég skemmti mér ágætlega og gaman að hitta alla. Fórum á sunnudaginn í sveitina, fórum svo heim og borðuðum pizzu ...Svalur Er bara búin að vera að vinna í vikunni, fer á kvöldvakt í kvöld og svo frí ámorgun og vinna um helgina.

En annars styttist í að sumarið verði búið en áður en það gerist þá kemur verslunarmannahelgin og við Kristján erum að spá að halda saman uppá afmælin okkar bara svona að gamni, en það kemur allt í ljós síðar höfum svosem ekkert ákveðið enn. En það mun allavega vera partý um versló, er í mjög löngu fríi þannig það verður stanslaust stuð!Hlæjandi
Svo er fiskidagurinn helgina eftir versló og ég er búin að fá að breyta einni vakt þannig við Kristján ætlum að fara og skemmta okkur, hef aldrei farið á fiskidaginn áður, þannig það verður etin fiskur og lýsi þá helgi.
Svalur
Helgin eftir fiskidaginn er svo stefnt á að hafa vinnupartý, veit ekkert hverjir ætla að koma eða hverjum á að bjóða eða búið að bjóða....þetta kemur allt í ljós annars verðum við bara tvær þrjár að drekka v(odka)atn. Við erum ekki mjög duglegar að halda partý við þessar af ,,yngri" kynslóðinni þannig það verður aðeins bætt úr því.

Spurning hvað maður eigi að gera af sér þar til vinnan byrjar...ætli það verði nokkuð,bakaði þó bananabrauð og af lyktinni að dæma þá verður það ljúffengt Brosandi

Segi ekki meira í bíli, endilega dugleg að kommenta. Held að blogg séu alveg að detta úr tísku..enginn les þau enda kommentar enginn.